: BAMBUSLÍNA 💚

Við elskum vörur úr bambus efni og teljum að bambus efni sé það besta fyrir barnið þitt!

Við höfum notað bambusvörur á okkar eigin börn og getum ekki hrósað þeim nóg! Húð nýfæddra barna er eitt það viðkvæmasta á jörðinni og að nota bambusvörur verndar og veitir þér og barninu þínu bestu þægindi og lúxus.

Efni unnin úr bambus eru einstaklega mjúk og þægileg og eru almennt ekki ofnæmisvaldandi frá náttúrunnar hendi. Bambusvörur vinna gegn bakteriumyndun og eru þvi fullkomnar fyrir litil kríli með viðkvæma húð. Bambusefni hefur góða einangrunareiginleika, er rakadrægt og viðheldur ferskri lykt.