Mál og Menning
Lína fer í lautarferð
Lína fer í lautarferð
Lína fer í lautarferð
Allir elska Línu langsokk!
Um bókina
Það er indæll haustdagur. Tommi og Anna eru í leyfi frá skólanum og Línu finnst tilvalið að fara í lautarferð. Hún pakkar ýmsum kræsingum í nestiskörfu og svo halda þau af stað út í haga. Á vegi þeirra verða bæði sauðþrá kýr og nautheimskur tarfur – auk þess sem herra Níels hverfur sporlaust. En sem betur fer er Lína bæði sterk og ráðagóð og getur leyst hvers kyns vanda.
Lína fer í lautarferð er sígild saga eftir Astrid Lindgren í nýjum búningi. Sigrún Árnadóttir þýddi.
Útgáfuár 2025
Gerð - Innbundin
Síður: 31

-
Hröð heimsending
Við gerum okkar besta til að koma öllum sendingum á höfuðborgarsvæðinu til skila og landsbyggðarpöntunum í póst eða hafa pantanir tilbúnar til afhendingar innan 24 klukkustunda frá pöntun.
-
Fair Trade
Það er okkur mikilvægt að vita hvaðan vörurnar okkar koma. Við erum stolt af því að bjóða barnavörur og fatnað frá fyrirtækjum sem starfa samkvæmt góðum siðferðislegum gildum. Verslun okkar býður upp á vandaðar vörur sem allar eru hannaðar og framleiddar í Evrópu.