Um bókina
Eftir flóðið mikla finnur fjölskylda sér samastað í undurfallegum, grænum dal. Enginn veit hvað dalurinn heitir svo þau kalla hann Múmíndal. Þar búa þau síðan, múmínsnáðinn og foreldrar hans, Snabbi, Mía litla og stundum líka Snúður, eftir því hvernig veröldin snýst.
Þau lenda í alls kyns ævintýrum: Sigla út í óvissuna á yfirgefnum bát og lenda í óvæntum stormi, hitta hina rafmögnuðu hattífatta og finna pípuhatt sem reynist vera í eigu galdrakarls sem veldur miklum usla í múmíndalnum.
Sígildar söguperlur fyrir nýja kynslóð múmínálfaaðdáenda!
Sögur úr Múmíndal geymir þrjár endursagnir rithöfundanna Ceciliu Davidsson og Alex Haridi á sögum Tove Jansson um hina ástsælu múmínálfa og vini þeirra. Listakonan Cecilia Heikkilä myndskreytir sögurnar.
Fyrir 4-12 ára
Gerð - Innbundin
Útgáfuár- 2020
-
Hröð heimsending
Við gerum okkar besta til að koma öllum sendingum á höfuðborgarsvæðinu til skila og landsbyggðarpöntunum í póst eða hafa pantanir tilbúnar til afhendingar innan 24 klukkustunda frá pöntun.
-
Fair Trade
Það er okkur mikilvægt að vita hvaðan vörurnar okkar koma. Við erum stolt af því að bjóða barnavörur og fatnað frá fyrirtækjum sem starfa samkvæmt góðum siðferðislegum gildum. Verslun okkar býður upp á vandaðar vörur sem allar eru hannaðar og framleiddar í Evrópu.